Boðtækni
  • Heim
  • VÖRUFLOKKAR
    • AÐGÖNGUMIÐAR OG KORT
    • BAR TENDER
    • LÍMMIÐAR
    • HEILBRIGÐISVÖRUR
    • PRENTARAR
    • SORPPRESSUR
    • VOGIR
    • ÖRYGGI OG VÖKTUN
  • Fréttir

A22 + SUMARHÚSAKERFI

A22+ Sumarhúsakerfið  er eitt vinsælasta kerfið sem fyrirtækið hefur í boði. Um er að ræða sérhannað þráðlaust hágæða sænskt  GSM vöktunarkerfi  fyrir sumarhús eða önnur híbýli til að fyrirbyggja þjófnað og skemmdir af völdum tjóna.

Virkni.  Kerfið er þráðlaust öryggis- og hitastjórnunarkerfi sem byggir á SMS samskiptum. Kerfið getur sent skilaboð í allt að 8 símanúmer við atburð. Einnig er hægt að nýta kerfið í ýmsar aðgerðir til stjórnunar s.s. hita upp bústaðin fyrir komu eða kveikja útiljós.
​Rafmagn af/á,  kerfið sendir boð um rafmagnsleysi ef spennufæðing  þess er rofin í 30 mín, eins þegar spenna kemur á að nýju. Varafl er innbyggð hleðslurafhlaða og heldur kerfinu gangandi í langvarandi rafmagnsleysi.
​Reykskynjun, ef reykskynjari fer í gang sendir kerfið SMS skilaboð um að reykur sé í húsinu.
​Hreyfiskynjun,  ef hreyfiskynjari nemur umgang  sendir kerfið SMS skilaboð um að hreyfing  sé í húsinu
​Hitastjórnun,  hitanemi er innbyggður í stöðinni, sendir boð þegar þess er óskað, virkar einnig sem frostvörn, ef hitastig fer niður  í 5°C í 30 mín., sendir kerfið SMS boð og ræsir þráðlausan útgang til hitunar.  Hægt er að stjórna hitastigi með SMS boðum og eru stillingarnar tvær, þ.e. +10 og+ 20C°.
Picture
Picture
Picture
Aðgangskerfi, Hægt er að setja kerfið á vörð og taka af verði með SMS skilaboðum eða þráðlausri fjarstýringu, Með því er hægt að hleypa einhverjum inn í húsið án þess að vera á staðnum

A22+ Sumarhúsakerfið  er góður og vandaður kostur fyrir sumarhúsaeigendur. Kerfið kemur tilbúið til notkunar og er því sérlega einfalt í uppsetningu. Notkunin er bæði einföld og aðgengileg.

Rekstrarkostnaður er lítill þar sem hann byggist aðeins á sendum SMS skilaboðum. Sum símafyrirtæki bjóða upp á frí SMS milli númera sem eru skráð eru á viðkomandi viðskiptavin. Í þeim tilvikum er rekstrarkostnaður engin. Ekkert mánaðagjald!
Picture
Sumarhúsakerfi A22+ inniheldur
 - Stjórnstöð með innbyggðum GSM síma, loftneti og spennugjafa 230VAC/6VDC
 - Rafmagn af / á
 - Reykskynjari
 - Hitaskynjari. Hitasvið -10 til +50 °C.
 - Hreyfiskynjari
 - Hurðanemi
 - Fjarstýring, 2. stk.
 - Límmiðar í glugga
 - Íslenskar leiðbeiningar
Hægt er að bæta við aukalega
 - Þráðlausum útgangi til stjórnunar
 - Útihitanema
 - Hitanema
 - Hurðanema
 - Hreyfiskynjara
 - Fjarstýringu
 - GSM loftneti
 - Þráðlaus rofi fyrir tengil
 - Þráðlaus rofi í töflu

Hægt er að nálgast ítarefni fyrir A22+ kerfið með nánari upplýsingum með því að velja úr listanum hér fyrir neða:
Ítarefni
 - Leiðbeiningar
 - Manual
 - A22+ Introduction
 - Data
 - Önnur GSM öryggiskerfi


Picture
Picture
Picture
Picture
Nánari upplýsingar hjá söluráðgjöfum Boðtækni í síma 554 0500

Boðtækni ehf
Selhellu 13
221 Hafnarfjörður
Iceland

 
Sími + 354 554 0500
GSM + 354 788 2323

info@bodtaekni.is
kt 600202-2780
Vsk 074092
Opnunartími:
Mánudaga -  fimmtudaga 9-17
Föstudaga -  9 -16
Neyðarsími utan opnunar 788 2323

Picture
Höfundarréttur © 2015 Boðtækni ehf
Öll réttindi áskilin.