Með einföldum búnaði er hægt að opna hlið og bílskúrshurðir með gsm síma. Hægt er að setja allt að 500 símanúmer inn í kerfið sem notendur.
Einnig bjóðum við heil galvaneseruð öryggishlið með innbyggðri opnun og öryggiskerfi ef sláin er rofin með einhverjum hætti eða reynt er að komast í gegn um hliðið sendir kerfið boð um innbrot í fyrirfram ákveðin símanúmer og kveikir á öflugri flautu.
Ekki þarf að vera á staðnum ef hleypa þarf umferð inn fyrir sem ekki er með aðgang að kerfinu því það er einfaldlega hringt í hliðið og það opnast.
Símkostnaður er enginn því kerfið þekkir númerið sem er að hringja og í stað þess að svara þá opnar það hliðið.
Upplagt fyrir fyrirtæki, sumarhúsafélög, bændur og þá sem vilja vakta eignina sýna.
GSM eining sem er með 500 númera minni.
12VDC spennufæðing, er með "relay time out" fyrir lokun á hliði.
Nánari upplýsingar í síma 554 0500 eða info(hjá)bodtaekni.is







