ZMODO mini ÖRYGGISMYNDAVÉL
ZMODO mini myndavélin er sérstaklega öflug háskerpu öryggismyndavél með nætursjón, hreyfiskynjara, Sendir boð við við hreyfingu og hljóð ásamt því að hafa tvívirkan hátalara.
Uppsetning vélarinnar er mjög einföld og tekur ótrúlega stuttan tíma. Virkni. Myndavélin tengist þráðlaust WiFi staðarneti og sérstaklega auðvelt er að tengjast vélinni með snjallsímaforriti til að skoða hvað vélin nemur. Einnig er hægt að tala við þann sem staddur er hjá vélinni.
Hægt er að stilla vélina á ýmsa vegu og láta hana senda boð við skynjun sem mynd, videó eða hljóðupptöku. Einnig er hægt að stilla fyrirfram á hvaða tímum á að senda boð og hverskonar boð. Á einfaldan hátt er hægt er að bjóða notendum aðgang að vélinni til að geta skoðað, spjallað eða fengið boð um atburð. Einnig er hægt að bjóða tímabundin aðgang t.d. ef barnfóstra er heima og vill fá boð um hreyfingu barns eða hljóð þess.
|
VIDEO. Um er að ræða 720P HD Video með 1MPX myndavél sem skilar 1280x720P mynd. Um er að ræða gæði sem skila þrefal meiri upplausn en VGA og aðrar IP myndavélar.
Myndavélin er HD IP sem gerir kleift að taka upp háskerpu mynd og myndband með litlu gagnarými án þess að tapa skýrleika myndarinnar.
Vélin tekur eingöngu upp þegar hún á að taka upp. Með því sparast mikið gagnapláss.
Vélin tekur eingöngu upp þegar hún á að taka upp. Með því sparast mikið gagnapláss.
Með einföldum hætti er hægt að kíkja heim, í bústaðinn, á ömmu, barnið, gæludýrið eða vinnuna. Notkunar möguleikarnir eru óteljandi allt eftir þörfum hvers notanda fyrir sig.
Ókeypis snjallforrit. Zsight er snjallforrit sem hlaða þarf niður til að nota myndavélina. Hægt er að nálgast Zsight eða MeShare bæði fyrir Android og iOS.
Myndavélarnar eru mjög notendavænar og auðveldar í notkun. Öll þjónusta og aðstoð fer í gegnum snjallforritið sem notað er til að stjórna vélinni. Sú þjónusta fer fram á rauntíma og er algjörlega ókeypis. Einnig eru allar leiðbeiningar og kennsla á myndrænu formi í snjallforritinu sjálfu.
Einnig annast Boðtækni alla þá tækniþjónustu, viðgerðir og viðhald á þeim búnaði sem í boði er. Fyrirtækið kappkostar að eiga mikið úrval af búnaði, varahluta og aukahluta á lager.
Itarefni fyrir ZMODO mini
tenging vélar
video
|
|
AÐRAR ÖRYGGISVÉLAR
360⁰ MYNDAVÉL
|
|
Nánari upplýsingar hjá söluráðgjöfum Boðtækni í síma 554 0500